Íslenska stærðfræðafélagið 75 ára og fyrirlestur Einars H. Guðmundssonar

ATH: Breytt tímasetning

Í tilefni 75 ára afmælis félagsins þann 31. október næstkomandi boð Íslenska stærðfræðafélagið til fundar. Einar H. Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands heldur erindið Kenning Björns Gunnlaugssonar um innsta eðli efnisins. Einar hefur skrifað margt um ævi Björns, verk hans og ekki síst brautryðjendastarf hans í kennslu í stærðfræði og raungreinum á Íslandi, en í ár eru liðin 200 ár síðan Björn hóf kennslu í stærðfræðilegum reikningslistum við Bessastaðarskóla, sjá hér. Fleiri greinar og hlekki má auk þess finna á síðu Einars.Fundurinn fer fram í stofu V102 í Háskólanum í Reykjavík. Fyrir erindið, kl. 16:30 17.00 verður boðið upp á kaffi og köku í tilefni dagsins og fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 17.30.

Björn Gunnlaugsson
Björn Gunnlaugsson

Einar H. Guðmundsson
Einar H. Guðmundsson

Hvar: Háskólinn í Reykjavík, stofa V102.Hvenær: 31. október. 16.30 – 17.00, kaffi og kaka. 17.00 – 18.00, fyrirlestur.Fyrirlesari: Einar H Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.Titill: Kenning Björns Gunnlaugssonar um innsta eðli efnisins.