Sérfræðingur í stærðfræðilegri eðlisfræði

Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í stærðfræðilegri eðlisfræði við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans.

Starfssvið

Sérfræðingnum er meðal annars ætlað að byggja upp sjálfstæðar rannsóknir í stærðfræðilegri eðlisfræði sem standast alþjóðlegan samanburð.

Stærðfræðistofa er rannsóknavettvangur stærðfræði og skyldra greina við Háskóla Íslands og eru þar stundaðar rannsóknir á ýmsum sviðum hreinnar og hagnýttrar stærðfræði, stærðfræðilegrar eðlisfræði og tölfræði (sjá https://math.hi.is).

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í stærðfræði, stærðfræðilegri eðlisfræði eða skyldri grein.
  • Virkni og hæfni í rannsóknum á alþjóðavettvangi.
  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknastarfa.
  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum  Raunvísindastofnunar en tekið verður tillit til hversu vel rannsóknir umsækjanda falla að áherslum stofunnar í rannsóknum í stærðfræðilegri eðlisfræði.

Umsóknarferli

Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. júní 2024 enda verði störfum nefnda, sem um málið fjalla, þá lokið.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

1.       Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

2.       Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

3.       Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

4.       Ritaskrá

5.       Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

6.       Greinargerð um rannsókna ef til ráðningar kemur

7.       Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast.

Akademískir starfsmenn með aðsetur á Raunvísindastofnun eru um 60 kennarar og sérfræðingar.  Stofnunin er rannsóknarvettvangur kennara, sérfræðinga og framhaldsnema sem stunda grunnrannsóknir í raun-  og jarðvísindum. Raunvísindastofnun  hefur sterk alþjóðleg tengsl og mörg rannsóknarverkefni eru unnin í víðtæku samstarfi vísindamanna hérlendis og erlendis.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 02.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Gunnar Stefánsson

gunnar@hi.is

Sækja um